Lindex flýtir opnun í Reykjanesbæ
Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa ákveðið að opna nýja verslun tveimur vikum fyrr en áætlað var vegna mun betri framgangs í framkvæmdum en áætlað hafði verið. Ný verslun Lindex í Reykjanesbæ opnar nú á laugardaginn, 29. júlí kl. 12:00.
Verslunin, sem staðsett er í aðalgangi verslunarmiðstöðvarinnar Krossmóa, mun bjóða allar þrjár meginvörulínur Lindex.
„Við erum ótrúlega ánægð að eiga möguleika á að flýta opnun í kjölfarið af því að framkvæmdir gengu framar björtustu vonum. Næstu daga munum við vinna stíft að því að stilla upp versluninni og þannig bjóða einstaka tískuupplifun til viðskiptavina okkar á Suðurnesjum. Við hlökkum mikið til að á Suðurnesjunum á laugardaginn kemur.“ segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi.
Lindex leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og virðingu fyrir því hvernig varan er framleidd og hefur fyrirtækið einsett sér að 80% framleiðslunnar verði framleidd með sjálfbærum og umhverfisvænum hætti fyrir árið 2020. Auk þess verður 100% af bómull fyrirtækisins framleidd með sjálfbærum hætti fyrir þann tíma.
Þess ber að geta að nýja verslunin verður byggð upp með nýrri innréttingahönnun Lindex sem leit dagsins ljós fyrst við opnun í London. Hönnunin byggir á björtu yfirbragði, ólíkum litbrigðum hvítra lita og svartra auk viðar sem gefur versluninni skandínavískt yfirbragð. Verslunin mun því veita viðskiptavinum innblástur og einstaklega hlýlegar móttökur sem á sér ekki hliðstæðu.
Verslunarmiðstöðin Krossmói var byggð árið 2008 og fjölþætt þjónusta er í húsinu sem hýsir m.a. verslun Nettó, Lyfju apótek og ÁTVR á Suðurnesjum. Húsið er um 10.000 m² og staðsett er í hjarta bæjarins.
Lindex rekur nú 5 verslanir á Íslandi-í Smáralind, tvær verslanir í Kringlunni, Glerártorgi á Akureyri og undirfataverslun á Laugavegi 7.
Nokkrar lykilstaðreyndir um Lindex:
Lindex býður upp á kventískufatnað, nærfatnað og barnafatnað auk snyrtivara
Lindex starfrækir um 480 verslanir í 16 löndum og verslanir á netinu í öllum ESB löndum
Hjá fyrirtækinu starfa um 5.000 manns-um 100 manns á Íslandi
Aðalskrifstofur Lindex eru í Gautaborg i Svíþjóð
Lindex tilheyrir Stockmann Group sem er aðili að finnsku kauphöllinni
Lindex á Íslandi styður baráttu UNICEF fyrir bættum hag barna í heiminum og Krabbameinsfélag Íslands Frekari upplýsingar má finna á www.lindex.com og á Facebook – Lindex Iceland