Frí heimsending með pöntunum yfir 10000

Lindex kynnir bleiku línuna 2017

-línan kemur í verslanir 6.október. 

Nú í ár styður Lindex baráttuna gegn brjóstakrabbameini með sölu á lúxus undirfatalínu þar sem 10% af sölu línunnar rennur til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini.

“Við vildum búa til fallegar flíkur fyrir góðan málstað. Með áherslu á fegurð og þægindi hönnuðum við þessa undirfatalínu með fáguðum efnum og fínlegum smáatriðum í fallegum litum allt frá dimmbleikum í dökkrauðan” segir Annika Hedin, yfirhönnuður Lindex.

Bleika línan samanstendur af 18 flíkum af heimafatnaði og undirfatnaði í miklum gæðum; brakandi hvíta silkiskyrtan, mjúka gráa kasmír settið og flauels sloppurinn í antikbleiku ásamt undirfötum í bleikum og svörtum tónum með glæsilegri blúndu. í línunni er einnig að finna mjúkan brjóstahaldara fyrir konur sem hafa farið í brjóstnám. 

Af sölu bleika armbandsins sem er með gylltri keðju og fallegum bleikum steini mun allur ágóði renna til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Sú barátta er stór hluti af skuldbindingu Lindex sem hefur síðustu ár safnað fé til styrktar málstaðnum. Línan kemur í takmörkuðu magni í verslanir Lindex þann 6.oktober nk. 

Fleiri myndir af línunni má nálgast hér:

 http://about.lindex.com/en/images/pink-collection-2017/